Halló allir
smá fréttir af okku skötuhjúunum...
Ok það er rétt við erum ekki nógu
dugleg við að skrifa hérna inn eg veit það og ég skal reyna að bæta
það ( segi það alltaf) reyndar hef ég gilda ástæðu fyrir þessu
núna...en hun kemur seinna í þessum skrifum..
Byrjum á því að óska Lottu og Andra
til hamingju með litla guttan sem fæddist á sunnudaginn...ekkert
smá sætur...
Og óskum öllum þeim sem áttu afmæli í
apríl og byrjun mai..sem sagt Ömmu og Ágústu til hamingju með
afmælið 13m apríl, Tinnu S með afmælið 10 apríl , Þurí með afmælið
3 mai...og öllum þeim sem eftir eru
Já eins og sumir kanski vita þá erum
við flutt út..SEM SAGT KOMIN Í OKKAR EIGIN HÚSNÆÐI...enginn smá
luxus skal ég ykkur nú segja...við erum sem sagt farin að leigja í
Grafarvoginum, engjahverfinu...og endlega droppið inn í heimsókn en
vinsamlegast hringið á undan ykkur svo við séum pottþétt heima,
erum ansi lítið heima þessa dagana....en þetta er algjört
heaven...
Kíktu á ömmu og afa í gær...amma er
öll að koma til..þvílík hetja
og þau eru svo mikið æði að þau
gáfu okkur kaffikönnu og straujárn...takk elskurnar..
Sl sunnudag var árshátíð Bónus...og
vorum við bæði að vinna til ca 7 og í sitthvorri búðinni...þanig að
það var bara skellt sér heim eftir það og í föt og drekka smá og
svo á broadway...ójá ég djammaði þarna og drakk ansi mikið og það
var geggjað....hafði reyndar það mottó að í fyrra var ég edrú á
árshátíðinni og nældi mér í þennan gullfallega yndislega unnusta
sem ég á og ég ætlaði að ath hvort ég myndi græða eitthvað þegar ég
væri drukkin en svo var ekki, þar sem ég er ein hamingjusöm og ég get
verið þessa stundina, en sem sagt það er oft sagt að margir höslti
og þannig þegar þeir eru í glasi en það er öfugt farið með mig
hehehe
Árshátiðin var geggju út í gegn og
skemmtum við okkur geggjað vel...en vá það er ekkert smá sem þessi
elska Marinó þekkir af fólki...hann spjallaði bara við alla og
þekkti alla sem er kanski skiljanlegt miðað við hversu mörg ár hann
hefur unnið hjá þessu fyrirtæki svo vöknuðum við bara ágætlega
snemma á mánudeginu og fengum tengdó í heimsókn og svo múttu
í heimsókn, og bíðum eftir fleirum til að heimsækja
okkur...alltaf heitt á könnuni hehe
Við erum búin að vera ansi mikið að
vinna undanfarið..ég hef verið í leikskólanum og svo eftir það í
bónus hérna í mosó...og því verið ansi mikiil þreyta þegar maður
loksins kemur heim til sín, en þetta venst...
Ég skrifa meira þegar við erum komin
með netið heim eða þegar ég skrepp herna í tölvuna í
vinnuni...endilega komið með komment og/ eða hafið samband og kíkið
í heimsókn til okkar..
Kveðja
Tinna og Marinó